Ryðverk Írisar Maríu Leifsdóttur eru samvinna listamanns, veðurs og tíma. Einkasýningin hennar, Ryðverk, opnar í Norska Húsinu á Stykkishólmi þann 16. maí kl. 14-16. Sýningin er opin í einn og hálfan mánuð.
Járnplöturnar standa undir berum himni þar sem úrkoma og önnur veðurskilyrði vinna á málminum, og þannig er hvert verk bundið þeim tíma og stað þar sem eyðingarmáttur náttúrinnar hefur mótað það. Útkoman er því jafn ófyrirsjáanleg og tíðarfarið sem hún endurspeglar.
Ryð er líkt og kaldur, hægur bruni. Verkin eru unnin úr svörtu stáli sem oxast smátt og smátt undir áhrifum súrefnis, ysta lagið tærist og myndar rauðleita húð. Með því að bera eld að ryðinu oxast málmurinn enn frekar. Efnaferlið skapar lifandi samspil náttúrulegra lita á grófu yfirborði. Þannig verða djúpbrúnir, appelsínugulir og rauðleitir tónar til úr svörtu stálinu.
Íris María hefur hannað sérstakar veggfestingar sem halda verkunum frá veggnum svo þau kasti skugga á vegginn. Skugginn verður þannig órjúfanlegur hluti verksins; hann breytist eftir birtu og tíma dags.
Ryðverkin eru skrásetning. Ryðið tekur á sig lífrænt form sem stjórnast af síbreytilegu ferli veðurs og niðurbrots. Þannig varðveitist minning veðursins í sjálfu efninu.
Íris María Leifsdóttir (f. 1993) er myndlistarkona sem skapar veðruð verk. Hún útskrifast í sumar með kennsluréttindi í listum við Listaháskóla Íslands, hefur lokið meistaragráðu í myndlist frá sama skóla, bakkalárgráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands og diplóma í listmálun frá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Íris María hefur sýnt á söfnum og galleríum bæði hérlendis og á Grænlandi.
-
Íris María’s Rust Works is a collaboration between artist, weather and time. Her solo show, Ryðverk, will open the 16th of May 2026 in Norska Húsið in Stykkishólmur from 3-5pm. The art exhibition will be open until midsummer. The steel is stored outside where rain and other weather conditions transform the metal, so each piece is tied to the time and place where natures destructive forces have formed it. The final outcome is therefore as unpredictable as the climate it reflects.
Rust is like a cold and slow burn. The artwork is made from carbon steel which oxidezes by reacting with oxygen, corroding the surface and turning it red. By burning the rust with fire the metal oxydizes even more. The chemical process creates a lively spectrum of natural colors on the rough surface. Deep brown, orange and reddish tones appear in the black steel.
Íris María has designed a special wall mount that places the pieces away from the wall, making their shadow appear and become an integral part of the art, changing with the light and time of day.
The Rust Works are a record of the weather. The rust takes on an organic form determined by the ever changing process of the weather and corrosion, preserving a memory of the weather in the material itself.
Íris María Leifsdóttir (b. 1993) is an Icelandic visual artist who works with the weather in her artistic practice. She is graduating this summer as an art teacher at the Iceland University of the Arts, holds an MFA in fine art from the same institution, a BA in sociology from the University of Iceland, and a diploma in painting from the Reykjavík School of Visual Arts. Íris María has exhibited in museums and galleries both in Iceland and Greenland.