Málverk Írisar Maríu hafa staðið undir berum himni þar sem úrkoma og önnur veðurskilyrði vinna á verkinu og standa úti í mánuð í senn. Hún hefur veðrað verkin sín í Reykjavík í hverjum mánuði á þessu ári, hvert málverk endurspeglar hvern mánuð á árinu 2026. Útkoman er því jafn ófyrirsjáanleg og tíðarfarið sem hún endurspeglar. Hún málar aftur og aftur yfir mánuðinn með olíulitum og íslenskum jarðefnum, eins og jökulleir frá Breiðarmerkurjökli, Falljökli, Svínafellsjökli, Sólheimajökli sem og sjávarbotnsleir frá Vestfjörðum. Olíumálningin og leirinn er formlaus skrásetning á veðrinu, sem tekur á sig lífrænt form sem stjórnast af síbreytilegu ferli veðurs í Reykjavík. Þannig varðveitist minning veðursins í sjálfu efninu. Íris María mun sýna þessi málverk í Iðnó í janúar 2027 sem stendur í mánuð. Sýningin mun heita Veðurfar. Þar sýnir hún sýnir tólf veðruð málverk, fyrir hvern mánuð á árinu.