Back to All Events

Litka samsýning


Veðrað í júlí 2026, málað með olíu og jökulurð frá Breiðamerkurjökli

Myndlistarfélagið Litka sýnir verk sín í Borgarbókasafninu Spönginni. Nafnið á sýningunni, Hringrás, er hægt að túlka á margan hátt í málverkinu. Litapallettan er jú hringrás, hringlaga flæði í mynstri og eða litum. Hin daglega rútína eða fæðing til dauða, endurtekning eða endurnýting. Allt þetta er hægt að sjá í málverkum þátttakenda á þessari samsýningu, þar sem hverjum og einum eru gefnar frjálsar hendur til að túlka nafnið á sýningunni. Um 40 félagsmenn Myndlistarfélagsins Litku taka þátt í þessari sýningu í Spönginni. Litka var stofnað 2009 og er öllum frjálst að ganga í félagið. Það sem félagsmenn eiga sameiginlegt er að mála á eigin forsendum, njóta þess og hittast og einnig að sýna saman afraksturinn.

Previous
Previous
November 5

Órof

Next
Next
January 10

Veðurfar