Jökulrof er gjörningur Írisar Maríu Leifsdóttur yfir Humarhátíð á Höfn í Hornafirði á vegum á vegum Svavarssafns - Listasafn Svavars Guðnasonar. Hún mun mála utandyra á vegg með jökulleir frá skriðjöklum Vatnajökuls. Veggverkið skolast af með tímanum og veðrinu. Það fer eftir aðstæðum og veðurfari hvernig veggverkið eigi eftir að mótast.
„Ég vanda hvert einasta skref á jökli. Í vettvangsskoðunum hlusta ég á rennandi vatn, brotum í jökulísnum og sé víðáttuna, ís sem teygir úr sér og mótar landslagið. Kuldaboli bítur mig þegar ég finn fyrir jökulurðinni; ösku frá eldgosum, fínlegan sand og jökulleir sem hefur mótast undir þrýsting íss og tíma. Ég safna saman jökulurð og jökulvatn í fötur á jöklinum og bý til málverk með þessum efnum. Ég legg merkingu í athöfninni við að skapa og leyfi veðrinu á jökulrótum móta verkin mín.“ - Íris María Leifsdóttir.