Back to All Events

Jökulrætur gjörningaröð á Höfn í Hornafirði

Jökulrætur

Verið velkomin á gjörningaröð Írisar Maríu Leifsdóttur á Höfn í Hornafirði í ágúst. Gjörningarnir verða fjórir og heita Jökulrætur og eru á vegum Svavarssafns. Fyrsti gjörningurinn fer fram um verslunarmannahelgina, sunnudaginn þann 4. ágúst 2024 kl. 15 hjá hlaupa- og hjólastíg við sjóinn, fyrir aftan Nýheima á Höfn í Hornafirði. Íris María skoðar hvernig við skynjum hreyfingu jökla, hvernig hreyfing þeirra sýnir flæði tímans og um leið hverfulleika heimsins. Íris María telur að bráðnun jöklanna sé helsta birtingarmynd umhverfisbreytinga samtímans. Í fyrsta gjörningnum mun Íris María mála með jökulleir og sandi frá Langjökli og olíumálningu á striga. Hún hefur safnað jökulurð frá jöklum á Íslandi og með gjörningunum einblínir hún á einn jökul í einu. Íris María málar með veðrinu og kallar málverkin sín og skúlptura Veðruð verk, þar sem veðrun og áhrif tímans leika lykilhlutverk í listsköpun hennar og leyfir hún náttúruöflunum að móta verkin. 

Næstu gjörningar verða 10. ágúst, 20. ágúst og 23. ágúst, staðsetning kemur síðar. Málverkin verða sýnd á Svavarssafni á næsta ári.


--

Underneath a glacier

Welcome to Íris María Leifsdóttir's performance series at Höfn in Hornafjörður in August. There will be four performances and they are called Underneath a glacier organized by Svavarssafn. The first performance will take place on sunday 4th of August, 2024 at 3pm outside by the running and cycling path along the coast cite, behind Nýheimar at Höfn in Hornafjörður. Íris María is interested in how we perceive the movement of glaciers. How glaciers’ transition affect our perception of the scale of time. During the first performance Íris María will paint with glacier clay and sand from Langjökull and oil paint on canvas. In each performance Íris María will focus on one glacier at a time. Íris María paints along with the weather and calls her paintings and sculptures Weathered Works, where weathering and the effects of time play a key role in her artistic creation and allows the forces of nature to shape the works.


Next performance will be the 10th, 20th and 23rd of August in a different location. The paintings will be exhibited in Svavarssafn next year.

Á Langjökli 2024

að sækja jökulleir til að mála með á striga fyrir fyrsta gjörninginn á Höfn í Hornafirði

Next
Next
August 10

Jökulrætur gjörningaröð á Höfn í Hornafirði